Kór veturinn 2021-2022

Í vetur hefst fjórtánda starfsár barnakórsins. Við hvetjum alla sem elska að syngja í góðum hóp að vera með okkur í vetur.

Söngur – vinátta – leikir

Kóræfingar yngri kórs (2.-4.bekkur) verða á mánudögum kl.13:15.
Æfingar eldri kórs (5.bekkur og eldri) verða á miðvikudögum kl.14:00.

Margt skemmtilegt verður á dagskránni í vetur, landsmót eldri (ef covid leyfir), æfingabúðir, jólatónleikar, náttfatapartý, messusöngur, vorferð og fleira skemmtilegt.

Verkefni vetrarins; popp lög, söngleikjalög, þjóðlög og fleira úr ýmsum áttum, ásamt því að syngja í míkrafón fyrir þá sem vilja prófa. Kórmeðlimir geta líka haft áhrif á lagaval.

Skráning er hafin hjá Ingu ritara eða hjá Sigurbjörgu kórstjóra s.6977974. Einnig er hægt að skrá sig á facebook-síðu kórsins. (skólakór sandgerðisskóla)

Hlökkum til að sjá sem flesta, gamla og nýja meðlimi.

Með söngkveðju
Sigurbjörg Hjálmars kórstjóri