Kæru foreldrar, kórbörn og aðrir áhugasamir;
Í næstu viku eða mánudaginn 4.september byrja kóræfingar aftur fyrir 2. – 4. bekk kl.13:15 og fyrir 5. bekk og eldri fimmtudaginn 7. sept kl.14:05.
Barnakórinn verður hvorki meira né minna en 10 ára á þessu starfsári og ætlum við að halda uppá afmælið með flottum tónleikum í vor með hljómsveit og fleiru skemmtilegu.
Jóla/aðventutónleikarnir okkar verða á sínum stað ásamt söng þegar kveikt er á jólatrénu okkar hér í Sandgerði. Náttfata og furðufatapartýin verða á sínum stað ásamt Vatnaskógsferðinni í vor.
Ég hlakka til að sjá nýja sem gamla kórmeðlimi og vonast ég til að sem flestir verði með okkur í ár svo að við getum haldið uppá afmælisárið með flottum og stórum tónleikum í vor. Við byrjum strax að undirbúa þá á fyrstu æfingunni í haust.
Skráningar fara fram hjá Ingu grunnskólaritara. Einnig er hægt að mæta á fyrstu æfinguna og skrá sig hjá Sigurbjörgu.